Af hverju þessi leið? Eldri Outlook breytir HTML sniðinu þegar undirskrift er límd beint inn. Þessi aðferð kemur í veg fyrir það.
-
1
Smelltu á „Sækja .htm skrá" takkann hér að ofan. Skráin vistast í niðurhalsmöppuna þína.
-
2
Opnaðu Outlook og farðu í File → Options → Mail → Signatures.
-
3
Smelltu á New, gefðu undirskriftinni nafn (t.d. „Eining Verk") og smelltu á OK. Ekki skrifa neitt í textareitinn — smelltu bara á OK aftur til að loka og lokaðu svo Outlook.
-
4
Opnaðu File Explorer og límdu þessa slóð í veffangastikuna:
%userprofile%\AppData\Roaming\Microsoft\Signatures
-
5
Finndu skrána sem heitir Eining Verk.htm (eða það nafn sem þú gafst undirskriftinni). Eyddu henni eða endurnefndu hana.
-
6
Afritaðu .htm skrána sem þú sóttir (úr skref 1) í þessa möppu og endurnefndu hana svo hún heitir nákvæmlega sama nafn og eldri skráin (t.d. Eining Verk.htm).
-
7
Opnaðu Outlook aftur. Undirskriftin ætti nú að virka rétt.